Sniðmát og myndasöfn

Sköpun og miðlun Kynningarefni 4. bekkur 40 mínútur

Tilgangur

Nemendur kynnast notkun tilbúinna sniðmáta og myndabanka í kynningum. Þeir læra að velja viðeigandi sniðmát og finna gæðamyndir sem styðja efni kynningarinnar.

Hæfniviðmið og námsmarkmið

Hæfniviðmið

Nemandi getur nýtt hugbúnað við gerð einfaldra kynninga

Námsmarkmið:
  • 4.1: Nemandi getur valið og notað sniðmát sem passar við efni kynningar
  • 4.2: Nemandi getur leitað að og sett inn myndir úr innbyggðum myndasöfnum
  • 4.3: Nemandi getur útskýrt hvers vegna hann valdi ákveðið sniðmát og ákveðnar myndir

Getustig og forsendur nemenda

  • Lestur: Nemandi getur lesið og metið texta og myndir
  • Tækni: Nemandi getur búið til kynningu og notað textasnið
  • Aðrar forsendur: Grunnþekking á því að myndir á netinu eiga eigendur

Lýsing á kennslustund

Kennarinn sýnir hvernig hægt er að velja sniðmát í Google Slides og Book Creator og hvernig má nota myndir úr innbyggðum myndasöfnum. Nemendur læra að velja sniðmát sem passar við efni kynningarinnar og leita að myndum sem styðja textann. Kennarinn ræðir einnig um höfundarrétt og að velja myndir sem er leyfilegt að nota.

Verkefnalýsing:

Nemendur búa til fimm glæru kynningu um land sem þeir hafa áhuga á. Þeir velja sniðmát sem passar við efnið, leita af myndum úr myndasafni Google Slides og raða glærunum í rökrétta röð: forsíða, staðsetning, náttúra, menning og lokasíða. Kennarinn leggur áherslu á að velja myndir sem styðja textann og passa við efnið.

Verkfæri og hugbúnaður

Google Slides — kynningarhugbúnaður

Fjölbreytt sniðmát og innbyggð myndaleit gera nemendum kleift að búa til fagmannlegar kynningar fljótt og auðveldlega

Book Creator — kynningarhugbúnaður

Býður upp á skapandi sniðmát sem höfða sérstaklega til yngri nemenda og er einfalt í notkun

Kennsluaðferðir

Leiðsögn og skoðun

Kennarinn fer í gegnum sniðmátavalkostina og nemendur ræða saman um hvaða sniðmát hentar hvaða efni.

Rannsóknargrundvöllur: Leiðsagnarkennsla (e. guided instruction) hjálpar nemendum að þróa eigin matsaðferðir (Fisher & Frey, 2008).

Sjálfstæð val

Nemendur velja sjálfir sniðmát og myndir og rökstyðja val sitt. Þetta eflir ákvarðanatöku og gagnrýna hugsun.

Rannsóknargrundvöllur: Markvisst val í námi eflir eignartilfinningu og innri hvatningu (Patall et al., 2008).

Matsaðferðir

  • Verkefnamat: Er sniðmátið viðeigandi og myndir í samræmi við efnið?
  • Munnleg kynning: Nemandinn segir frá af hverju hann valdi þetta sniðmát og þessar myndir
  • Gátlisti: Kennarinn notar gátlista til að meta hvort allir þættir séu til staðar

Aðlögun

Aukin áskorun

Nemendur geta bætt við hreyfiáhrifum og prufað að breyta litasamsetningu sniðmátsins

Stuðningur

Kennarinn velur þrjú sniðmát fyrirfram og nemandinn velur af þeim þremur

Þverfaglegar tengingar

  • Samfélagsfræði — nemendur rannsaka og kynna erlend lönd
  • Íslenska — nemendur skrifa lýsandi texta um menningu og náttúru
← Til baka í Kynningarefni 4. bekkur →